Um 60 manns mættu á aðalfund Keilis sem haldin var í gærkvöldi í golfskálanum. Már Sveinbjörnsson stýrði fundinum, helstu rekstrarniðurstöður voru:
Félögum fjölgaði á milli ára um 48, hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 27.499.129 og hagnaður ársins nam 42.080.491. Smellið hér til að sjá ársskýrslu og reikninga stjórnar fyrir árið 2012
Bergsteinn Hjörleifsson var endurkjörinn formaður Keilis. Einnig voru kosinn í stjórn:
Til tveggja ára, Ingveldur Ingvarsdóttir og Guðmundur Haraldssson
Til eins árs, Sveinn Sigurbergsson og Hálfdan Karlsson
Á fundinum voru veittar sérstakar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu:
Bjartasta vonin Atli Már Grétarsson
Framfarabikar drengja Henning Darri Þórðarsson
Framfarabikar stúlkna Anna Sólveig Snorradóttir
Háttvísibikar GSÍ Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Bikarmeistari Keilis Jón Ingi Jóhannesson
Þrautseigjuverðlaun Kristinn Kristinsson