Yngsta kynslóðin kynnist golfinu á laugardögum
Undanfarnar vikur hafa golfkennarar Keilis kennt yngstu iðkendum golf á svokölluðum SNAG æfingum í Hraunkoti. Æfingarnar eru miðaðar við aldursflokkinn 5-10 ára og hefur þátttaka farið fram úr björtustu vonum, einkum hjá þeim yngstu. Þrátt fyrir að æfingar hefjist rétt rúmlega 9 á laugardögum hefur áhuginn ekki látið á sér standa bæði hjá börnum sem og [...]