Fréttir af klakamálum
Kæru félagar! Eins og félagar hafa vafalaust tekið eftir hefur ís og klaki sem lagst hefur á golfvöllinn okkar legið óvenju lengi, eða frá í desember. Starfsmenn Keilis hafa lagt mikla vinnu í að fyrirbyggja kalskemmdir af völdum klakans og hafa mulið, brotið og brætt ís af öllum flötum og teigum þar sem ís lá yfir. [...]