Púttmót til styrktar æfingaferðar Keilis

2018-02-27T15:57:25+00:0027.02.2018|

Púttmót til styrktar æfingaferðar afreks og afreksefnahóps Keilis verður sunnudaginn 4. mars frá kl. 10.00 til 17.00 í Hraunkotinu. Keppt er í flokki 12 ára og yngri, unglingaflokki 13 til 18 ára og í kvenna- og karlaflokki. Leiknir eru 3x12 holur. Allir sem pútter geta valdið eru velkomnir. Mótsgjald er 500 kr. fyrir þau yngstu (12 [...]

Keilir og Setberg í meira samstarf

2018-02-23T10:58:46+00:0023.02.2018|

Nú á dögunum var skrifað undir samstarfssamning við Golfklúbbinn Setberg. Samningurinn snýr að viðhaldi Setbergsvallar og mun Keilir einnig sjá um innheimtu GSE. Með umhirðu er átt við öll þau verk sem þarf að vinna til þess að völlurinn sé í því ástandi sem eðlilegt er að gera kröfu um ásamt öðrum hefðbundnum störfum sem til [...]

Brynja áfram með veitingasöluna

2018-02-23T09:32:55+00:0023.02.2018|

Gengið var frá áframhaldandi samstarfi við Brynju Þórhallsdóttur um rekstur veitingasölunnar í golfskála Keilis fyrir komandi golfvertíð. Brynja á stórt pláss í hjörtum okkar Keilismanna og er það sérstakleg ánægjulegt að vita af henni hjá okkur á árinu 2018. Nú styttist í golfárið og hægt er að fara að telja niður fyrir komandi átök.

Bjarni Þór vallarstjóri ársins

2018-02-20T13:44:53+00:0020.02.2018|

Nú á dögunum kaus SÍGÍ sem eru samtök Íþrótta og golfvallastarfsmanna á Íslandi vallarstjóra ársins hjá golfvöllum og knattspyrnuvöllum landsins. Það var Bjarni okkar Hannesson sem hlaut nafnbótina Vallarstjóri ársins í flokki golfvalla. Við óskum Bjarna og starfsólki hans innilega til hamingju með nafnbótina og einsog við vitum er hann vel að heiðrinum kominn. Enda búinn [...]

Go to Top