Nýliðna helgi var haldið Stigamót hjá unglingunum á Hellu og Áskorendamót á Hellishólum. Gríðarlega flott tilþrif sáust bæði hjá okkar fólki sem og öðrum. Þátttakendur á mótum helgarinnar voru samtals 202 þar af 41 frá Keili. Árangur var góður líkt og fyrr í sumar en 8 einstaklingar frá GK unnu til verðlauna um helgina.
Eftirtaldir komust á verðlaunapall:
Stigamót Arion banka
17-18 ára stelpur 2 sæti Sara Margrét Hinriksdóttir
15-16 ára drengir 2 sæti Birgir Björn Magnússon
Áskorendamót
15-16 ára strákar 1 sæti Sverrir Kristinsson
2 sæti Elías Fannar Arnarsson
3 sæti Stefán Ingvarsson
14 ára og yngri strákar 2 sæti Daníel Ísak Steinarsson
14 ára og yngri stelpur 1 sæti Íris Lorange Káradóttir
2 sæti Björg Bergsveinsdóttir