Tilnefningar til íþróttamanns Hafnarfjarðar vegna íþrótta og viðurkenningarhátíðar fyrir árið 2023

Axel Bóasson er einn af bestu kylfingunum á Íslandi í dag og leikur sem atvinnukylfingur á Nordic league mótaröðinni. Þar endaði hann í 5.sæti samanlagt og fékk boð um að leika á Challenge tour mótaröðinni sem er önnur deild golfsins í Evópu.

Axel Bóasson gerði sér lítið fyrir og sigraði á Big Green Swedish matchplay mótinu á Nordic league mótaröðinni sem fram fór í Svíþjóð dagana 12.-14. júlí.

Mikil og góður stígandi hefur verið í leik Axels í ár og verður gaman að fylgjast með honum á sterkari mótaröð.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er atvinnukylfingur í golfi og leikur á Evrópumótaröð kvenna þar sem hún var með takmarkaðan þátttökurétt. Guðrúnu Brá tók þátt tíu Evrópumótum á árinu.Hennar besti árangur var á Belgian Ladies open í maí.

Í dag er Guðrún 192. sæti á styrkleikalista LET Evrópumótaraðarinnar. Eins og staðan er í dag þarf hún að fara í lokamótið til að ná þátttökuréttinum aftur á mótaröð þeirra bestu í Evrópu.

Guðrún Brá og Axel Bóa eru góðar fyrirmyndir innan vallar sem utan og tilnefnir Golfklúbburinn Keilir þau með stolti til að verða íþróttakona og -íþróttakarl Hafnarfjarðar fyrir árið 2023.